Sölvi Sveinsson kynnir bók sína Dagar handan við dægrin
feykir.is
Skagafjörður
02.10.2015
kl. 21.22
Útgáfuhátíð verður haldiin á Kaffi Króki laugardaginn 3. október kl. 14–16. Þar mun Króksarinn Sölvi Sveinsson kynna bók sína, Dagar handan við dægrin, lesa úr henni og spjalla við gesti.
Í bókinni fjallar Sölvi á afar skemmtilegan hátt um mannlíf og atburði á Sauðárkróki eins og þeir komu honum fyrir sjónir á uppvaxtarárum hans, 1950–1970. Bókin verður seld á staðnum á sérstöku kynningarverði.