Soroptimistasystur fara af stað
Undanfarin 10 ár hefur Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar haft umsjón með útnefningu umhverfisviðurkenninga fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Á þessum 10 árum hafa 63 staðir fengið viðurkenningu. „Nú þegar sumarið virðist vera að koma hjá okkur hér í Skagafirði og gróður farinn að dafna munu Soroptimistasystur fara að huga að skoðunarferðum um fjörðinn,“ segir í fréttatilkynningu frá Soroptimistaklúbbnum.
Íbúar sveitarfélagsins mega því eiga von á því að sjá klúbbsystur kíkja yfir girðingar og runna við íbúðarhús í þéttbýli, rúnta heim að bæjum í sveitinni ásamt því að skoða lóðir og umhverfi hjá fyrirtækjum og stofnunum. Farnar verða tvær skoðunarferðir um fjörðinn frá júní til ágúst.
„Klúbbsystrum hefur þótt reglulega gaman að fá tækifæri til þess að sinna þessu verkefni og sjá að umgengni í sveitarfélaginu okkar er stöðugt að breytast til hins betra. En í þessu eins og svo mörgu má gera betur og ef að allir leggja sitt af mörkum þá verður auðveldara að hafa umhverfið í bæ og sveit snyrtilegt,“ segir loks í fréttatilkynningu