Starfsemi félagsins Á Sturlungaslóð lögð niður

Vígsla Róðurkrossins 2009. Mynd: Á Sturlungaslóð.
Vígsla Róðurkrossins 2009. Mynd: Á Sturlungaslóð.

Á fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Skagafjarðar þann 9. júní sl. kom fram tilkynning frá Kristínu Jónsdóttur f.h. félagsins Á Sturlungaslóð, um að starfsemi félagsins hafi verið lögð niður. Félagið Á Sturlungaslóð var stofnað árið 2009 með það að markmiði að kortleggja og kynna helstu sögustaði frá tímum Sturlunga og Ásbirninga í Skagafirði og vekja athygli á þeim mikla menningararfi sem tengist sögu þeirra.

Félagið setti upp söguskilti á öllum helstu sögustöðunum, til dæmis um Haugsnesbardaga og grjóther Sigurðar Hansen, Víðinesbardaga, Reynistað og Selvík á Skaga. Félagið var með sögudag á hverju ári og fræðsluerindi og tók þátt í málþingum í samstarfi við aðra. Það bauð í gönguferðir og stóð fyrir samlestri á ritum Sturlungu. Félagið gaf út miðaldakort, einnig litabókina Ásbirningasögu sem er gefin í alla 6. bekki í grunnskólum héraðsins og endurútgaf ritið Á Sturlungaslóð sem var uppselt. Ritið var fyrst gefið út árið 2003 af Byggðasafni og Héraðsskjalasafni Skagfirðinga og Hólaskóla. Einnig stóð félagið fyrir Ásbirningablóti í nokkur ár. Þá lét félagið reisa minnismerki, róðukross, á slóðum Haugsnesbardaga og hlaða Fosslaug og bauðst reyndar síðar til að láta fylla upp í laugina vegna slæmrar umgengni sem ekki var þegið. Félagið hélt úti heimasíðu með miklum fróðleik og er sú heimasíða núna runnin saman við heimasíðu Kakalaskála,“ segir Kristín Jónsdóttir einn af forsprökkum félagsins. 


Kristín telur að markmiði Á Sturlungaslóð hafi verið náð og að hennar mati stóð félagsskapurinn í félaginu upp úr.

„Félagsskapurinn stóð upp úr og allt það góða fólk sem lagði á sig mikla og óeigingjarna vinnu til að öll verkefni færu eins og stefnt var að, nytu sín sem best og næðu til þeirra sem höfðu áhuga á sögunni. Okkur finnst félagið hafa náð því markmiði að vekja athygli fólks hér í Skagafirði á þessum mikla menningararfi,“ segir Kristín.

Kristín er spurð að því hvort það hafi staðið til frá upphafi að leggja félagið niður og af hverju það sé gert núna.

„Það var ekki ætlunin í upphafi að leggja félagið niður en flestum markmiðanna sem var stefnt að í upphafi töldum við hafa verið náð og hreinlegra að leggja félagið niður en láta það verða munaðarlaust, en í það stefndi þegar stjórnarmenn, sem sumir höfðu staðið vaktina frá því fyrir formlega stofnun þess árið 2009, gáfu ekki lengur kost á sér. Nú hafa verið sett á fót í Skagafirði tvö fyrirtæki sem halda þessum 13. aldar menningararfi okkar á lofti og vissulega má líta á stofnun þeirra sem eitthvað sem félagið hefur með tilveru sinni haft áhrif á þó svo það hafi ekki komið beint að stofnun eða rekstri þeirra fyrirtækja,“ segir Kristín að lokum og á þar við fyrirtækin 1238 : The Battle of Iceland og Kakalaskála.

Umfjöllunin birtist í 25. tölublaði Feykis.

/SMH

 

Fleiri fréttir