Steinull hf. umhverfisfyrirtæki ársins 2015

Páll Erland, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Steinullar við afhendingu verðlaunanna í morgun.
Páll Erland, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Steinullar við afhendingu verðlaunanna í morgun.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti  í morgun umhverfisverðlaun atvinnulífsins á umhverfidegi atvinnulífsins sem nú stendur yfir á Hilton Reykjavík Nordica. Þar var Steinull hf. á Sauðárkróki valið umhverfisfyrirtæki ársins 2015.

Í rökstuðningi dómnefndar um Steinull – umhverfisfyrirtæki ársins segir m.a.:

„Umhverfisfyrirtæki ársins er rótgróið og stundar framleiðslu á vörum sem eru í alþjóðlegri samkeppni. Fyrirtækið nýtir að mestu innlent hráefni til framleiðslunnar sem engin hætta er á að gangi til þurrðar. Öndvert við flesta keppinauta sína erlendis nýtir fyrirtækið einungis innlenda endurnýjanlega raforku til framleiðslunnar og útstreymi gróðurhúsalofttegunda er minna en hjá keppinautunum. Kolefnisspor framleiðsluvörunnar er því lægra en hjá  samkeppnisaðilunum. Undanfarin ár hefur verið lagt kapp á að draga úr úrgangi og stór hluti hans er nú endurnýttur í framleiðsluferlinu. Einnig hefur verið unnið að áhættugreiningum, forvörnum og úrbótum í vinnuumhverfinu.

Framleiðsluvörur fyrirtækisins hafa hlotið vottanir erlendra úttektaraðila fyrir gæði og að uppfylla staðla sem um þær gilda. Fyrirtækið hefur hlotið vottun fyrir gæðakerfi samkvæmt ISO 9001 staðlinum. Það hefur einnig fengið vottun samkvæmt umhverfisstaðlinum ISO 14001 og stefnt er að því að ljúka vottun samkvæmt vinnuverndarstaðlinum OSHAS 18001 á næsta ári.

Fyrirtækið hóf starfsemi sína fyrir réttum 30 árum og hefur í mörg ár hlotið viðurkenningu Creditinfo sem fyrirmyndarfyrirtæki.“

Samkvæmt fréttatilkynningu var uppbygging Orku náttúrunnar á hraðhleðslustöðvum fyrir rafbíla valið framtak ársins 2015 á sviði umhverfismála.

Dómnefndina skipuðu Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri umhverfismála hjá verkfræðistofunni Eflu, formaður, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík og Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Að umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.

Þess má geta að Einar Einarsson var í opnuviðtali Feykis í síðustu viku í tilefni af því 30 ár eru liðin frá stofnun fyrirtækisins.

Fleiri fréttir