Stjórn SSNV vill halda ársþing og haustþing
Áttundi fundur stjórnar SSNV var haldinn á Blönduósi sl. þriðjudag. Þar var gerð tillaga vegna samþykktar 23. ársþings þar sem laganefnd gerði tillögu þess efnis að undirbúin yrði stofnun fulltrúaráðs sem skipað verði fulltrúum frá öllum sveitarfélögum sem aðild eiga að SSNV eða annarra sambærilegra lausna leitað til að opna betur fyrir aðkomu sveitarstjórna að SSNV.
Ársþing samþykkti að vísa tillögunni til umfjöllunar í stjórn SSNV. Gerði stjórnin eftirfarandi samþykkt á fundinum sl. þriðjudag:
Stjórn SSNV samþykkir að leggja til að í stað þess að ofangreind tillaga verði samþykkt verði samþykktum SSNV breytt á þann veg að haldin verði tvö þing, Ársþing að vori þar sem afgreidd skulu þau mál sem fram til þessa hafa verið afgreidd á Ársþingi í samræmi við samþykktir og þingsköp SSNV, og hinsvegar Haustþing sem væri málþing um sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna en þar væri einnig afgreidd fjárhagsáætlun næsta árs og kosið til stjórnar samtakanna það ár sem sveitarstjórnarkosningar fara fram.