Stólarnir mæta firnasterku liði KA
Það verður erfitt verkefni sem meistaraflokkur karla hjá Tindstóli á fyrir höndum í kvöld en þá leikur liðið við KA í bikarkeppninni. Leikurinn hefst á KA-vellinum á Akureyri í kvöld klukkan 19.
Tindastóll komst áfram í aðra umferð með því að leggja Dalvík/Reyni að velli um daginn og nú mæta þeir firnasterku liði KA.