Stólastúlkur út að borða
1238, Grána og Sauðárkróksbakarí buðu í gærkvöldi stúlkunum sem skipa lið Lengjudeildarmeistara Tindastóls tilveislu í Gránu á Sauðárkróki. Boðið var upp á bragðmikla Mexíkóveislu, leiki í sýndarveruleika og köku ársins í eftirrétt, en frá þessu er greint á Facebook-síðu 1238.
Sýndarveruleikasýningin 1238: Baráttan um Ísland er reyndar lokuð sem stendur eða þar til hömlum vegna COVID verður aflétt. Þá er tónleikahald í Gránu í frosti sem stendur af sömu ástæðu en eflaust munu Gránuliðar verða snöggir að grípa tónlistargæsina þegar hún gefst.