Stórleikur í Síkinu á morgun
Stórleikur verður í Síkinu á morgun, þriðjudag, þegar Tindastóll tekur á móti Snæfelli í átta liða úrslitum Lengjubikarsins. Samkvæmt fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeild Tindastóls má búast við hörkuleik, eins og alltaf þegar þessi lið mætast.
„Liðið sem sigrar í þessum leik tryggir sér farmiða í „final four“ á föstudaginn sem verður að þessu sinni leikinn í Garðabæ. Vonandi sjáum við sem flesta í húsinu á morgun, enda um stórleik að ræða. Tökum nú höndum saman og styðjum hressilega við bakið á strákunum,“ segir í tilkynningunni.
Leikurinn hefst kl. 19:15. Áfram Tindastóll!