Sumaropnun í sundlauginni á Hofsósi
„Með hækkandi sól og auknum lofthita hitnar einnig í kolunum hjá ferðaþjónustuaðilum í firðinum. Nú er starfsemin víðast hvar að komast á gott skrið; tjaldstæði, kaffihús, og veitingastaðir að opna eftir vetrardvalann,“ segir í tilkynningu á fésbókarsíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Sundlaugin á Hofsósi fór yfir í sumaropnun í gær og er nú opin alla daga frá 09:00-21:00. Hinar laugarnar skipta yfir í sumaropnun þann 1. júní. „Við hvetjum ykkur til að gerast túristar í Skagafirði sem flesta daga í sumar og nýta ykkur það frábæra þjónustu- og afþreyingarframboð sem hér er,“ segir ennfremur á fésbókarsíðunni.
Hægt er að kynna sér ferðaþjónustu í Skagafirði á www.visitskagafjordur.is.