Sundlaug Sauðárkróks opnuð á ný
feykir.is
Skagafjörður
22.06.2015
kl. 16.47
Nú geta fastagestir sundlaugarinnar á Sauðárkróki glaðst því laugin var opnuð í morgun eftir viðhald og endurbætur. Laugin hefur verið lokuð síðan 1. júní, því veðurguðirnir settu strik í reikninginn og of kalt var til að leggja efni á sundlaugarbakkana.
„En nú er þetta allt komið og verður laugin opin frá 6:50 - 21:00 alla virka daga og milli kl 10:00 og 17:00 um helgar,“ segir í tilkynningu frá sundlauginni.