Nú hefur sundlaugin á Hofsósi verið opnuð aftur eftir lokun v/viðgerðar og viðhalds. Eflaust margir fastagestir sem fagna þessu enda sundlaugin búin að vera lokuð síðan 8. september.
Frá og með þessari opnun hefst vetraropnun og er hún sem hér segir:
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Lokað efni 23.08.2026
kl. 20.28 oli@feykir.is
Það var ljóst eftir jafntefli á Ólafsfirði um miðja síðustu viku að allir fjórir leikir Tindastóls sem eftir voru í 3. deildinni þetta sumarið yrðu í raun hreinir úrslitaleikir. Staðan á toppi deildarinnar er það jöfn, en fjögur lið berjast um tvö sæti í 2. deild, að það má hvergi út af bregða. Í dag mættu Stólarnir liði Augnabliks í Fífunni og tvö mörk frá Benna á lokakaflanum voru allt sem þurfti til að næla í stigin þrjú. Lokatölur 0-2.
Lægri vextir, stöðugra verðlag og lægri framfærslukostnaður skipta heimili og fyrirtæki miklu máli. Það er því ekki skrýtið að þau mál séu fyrirferðarmikil í umræðunni um Evrópusambandið. Íslendingar borga hæstu vexti í Evrópu og við borgum mest fyrir matarkörfuna í annars frábæru landi. Já, þetta eru sterk rök fyrir því að segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk.
Síðasta vetur tók karlalið Tindastóls þátt í Evrópukeppni í körfubolta. Þátttakan heppnaðist vel, liðið átti marga stórfína leiki í keppninni, það náði góðum árangri og frábær stemning skapaðist í Síkinu sem vakti verðskuldaða athygli út fyrir landsteinana og skilaði körfuknattleiksdtildinni tekjum. Í yfirlýsingu frá stjórn körfuknattleiksdeildar í morgun var sagt frá því að ákveðið hafi verið að endurtaka leikinn og verða Stólarnir því enn á ný þátttakendur í ENBL-deildinni.
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf, Lokað efni 23.08.2026
kl. 11.00 hinrik@feykir.is
Feykir hafði af því spurnir að nafnar nokkrir úr Blönduhlíðinni væru á leið í ævintýraferð og samdi við þann yngri að segja okkur ferðasöguna að ferð lokinni og kemur hún hér:
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 23.08.2026
kl. 10.51 oli@feykir.is
Nítjánda umferð 2. deildar karla í knattspyrnu hófst í Garðabænum í gær þar sem botnlið KFG tók á móti liði Kormáks/Hvatar í Miðgarði. Garðbæingar voru í slæmum málum kyrfiilega staðsettir á botni deildarinnar fyrir sléttri viku en 0-5 sigur í síðustu umferð virtist hafa fært þeim byr undir báða og þeir héldu uppteknum hætti þegar Húnvetningar kíktu í heimsókn. Lokatölur 4-0.
Lægri vextir, stöðugra verðlag og lægri framfærslukostnaður skipta heimili og fyrirtæki miklu máli. Það er því ekki skrýtið að þau mál séu fyrirferðarmikil í umræðunni um Evrópusambandið. Íslendingar borga hæstu vexti í Evrópu og við borgum mest fyrir matarkörfuna í annars frábæru landi. Já, þetta eru sterk rök fyrir því að segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk.
Við stöndum frammi fyrir mikilvægri þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst. Niðurstaðan gæti varðað miklu um framtíð mína og minna og byggðarlagsins míns. Ég er bóndi og við fjölskyldan rekum býli á Brúnastöðum í Fljótum. Þar stundum við ýmiskonar starfsemi, erum með stórt sauðfjárbú á íslenskan mælikvarða, framleiðum nautakjöt og mjólkum geitur til að gera geitaosta. Við rekum einnig ferðaþjónustu og leggjum áherslu á að öll þessi verkefni styðji hvert annað. Við bjóðum gestum og gangandi að koma og kynna sér það sem við erum að gera og kaupa afurðirnar okkar.
Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í mánuðinum. Þvert á móti hefur hún haldið áfram í sumar að kynda undir verðbólgunni. Meðal annars með hækkun komugjalda á heilsugæzlustöðvar um 100%. Vanhæfni ein og sér getur ekki útskýrt framgöngu hennar.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Reynir Snær Magnússon fæddist árið 1993, alinn upp á Sauðárkróki af Aðalheiði Reynisdóttur og Magnúsi Ingvarssyni. Hljóðfærið hans er gítar. Spurður um helstu tónlistarafrek svarar hann: „Ég er nú ekki viss hvað er vert að nefna nema kannski Músíktilraunir 2012. Var þar valinn Gítarleikari Músíktilrauna sem gaf mér mikið spark til að leggja þann metnað í gítarleik sem ég geri í dag.“ Reynir býr nú í Reykjavík en er i jazzgítarnámi i Tónlistarskóla Garðabæjar og stefnir á miðpróf i vor. „Ég er að spila i nokkrum böndum en helst mætti nefna Körrent, sem spilar frekar rokkslegið popp, og Prime Cake sem er "instrumental" fusion kvartet. Svo að sjálfsögðu er ég í alskagfirsku ballsveitinni Hljómsveit kvöldsins.“