Sungið fyrir starfsfólk Nýprents - Myndband
Hinn margrómaði Öskudagur er í dag og þrátt fyrir Covid komu margar furðuverur í afgreiðslu Nýprents á Sauðárkróki og sungu fyrir starfsfólk. Börn á öllum aldri mættu og þöndu raddböndin mismikið, einhverjir fóru styttri leiðina og sungu um gamla Nóa og Bjarnastaðabeljurnar eins og gengur en aðrir lögðu aðeins meira á sig og fóru með flóknari texta.
Meðfylgjandi myndband sýnir brot af þeim sem furðuverum sem komu í Nýprent.