Sveinbjörg ráðin atvinnuráðgjafi hjá SSNV

SSNV hefur ráðið Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur í starf atvinnuráðgjafa og tekur hún við starfi Gudrunar Kloes, sem lætur af störfum 1. desember nk. Norðanátt.is greinir frá þessu.

Sveinbjörg er viðskiptafræðingur frá Bifröst og hefur lokið meistaranámi í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur verið búsett í Stavanger í Noregi frá febrúar 2012. Þar starfaði hún sem „project controller“, sem hún segir vera eins konar verkefna-fjármálastjóra.

„Fyrirtækið sem ég vann hjá er með samninga við nokkur fyrirtæki í olíuiðnaðinum og mitt hlutverk var að halda utan um kostnað og tekjur nokkurra verkefna, ásamt því að útbúa reikningsforsendur og gefa út reikninga til viðskiptavina fyrirtækisins,“ segir Sveinbjörg í samtali við Norðanátt.is.

Það leggst vel í Sveinbjörgu að flytja aftur til Íslands, og það heim á Hvammstanga. „Ég er gríðarlega spennt, verður gott að komast heim og upplifa smá vetur eftir þennan tíma hérna úti. Held að það geti nánast allir brottfluttir Húnvetningar verið sammála um það að það sé alltaf gott að komast heim.“ Hún segist nú þegar vera með eitthvað af hugmyndum í kollinum sem gætu nýst í starfinu. „Þetta er virkilega áhugaverð staða sem ég hlakka mikið til að takast á við.“

Sveinbjörg hefur störf 1. nóvember nk.

Fleiri fréttir