Sýnishorn af vetri í lok mánaðarins

Búast má við að vetur konungur geri vart við sig i lok mánaðarins, samkvæmt spám Veðurklúbbsins á Dalvík.
Búast má við að vetur konungur geri vart við sig i lok mánaðarins, samkvæmt spám Veðurklúbbsins á Dalvík.

Þriðjudaginn 6. október 2015 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar og voru fundarmenn sjö talsins, sem er óvenju fátt, enda veður gott og að ýmsu að hyggja hjá veðurspámönnum. Farið var yfir spá síðasta mánaðar og voru fundarmenn að vonum ánægðir með tíðarfarið og ekki síður hversu vel hefði tekist til með veðurspá septembermánaðar.

Nýtt tungl kviknar 13. okt. kl. 00:06 í norðri og er það þriðjudagstungl. „Þessi tunglkoma getur annað hvort boðað mjög gott eða mjög vont tíðarfar. Aðrar vísbendingar benda til þess að veðurfar í október verði gott eða svipað og það var í september. Þó muni koma smá sýnishorn af vetri í lok mánaðarins, sem ekki mun standa lengi,“ segir í tilkynningu frá veðurklúbbnum.

Góð stemning var á fundinum, þó svo að nokkurra væri saknað við spádóminn. Engu að síður voru klúbbfélagar bjartsýnir á haustið og veturinn fram að áramótum, eins og eftirfarandi veðurvísa ber með sér:

Í október hefst skólinn

að bjóða börnum heim.

Í nóvember er náttlangt

og norðurljósageim.

/KSE

Fleiri fréttir