Sýnum hvort öðru virðingu og tillitssemi
Á þessum erfiðu tímum viljum við biðla til almennings um samvinnu, viðskiptavina verslana og annarra þjónustuaðila til að sýna starfsfólki kurteisi og virðingu. Reynum frekar að vera jákvæð og þakklát og þá gengur allt miklu betur. Starfsfólk í verslun og þjónustu er mikilvægur hluti framvarðarsveitar til að halda samfélaginu gangandi ef við eigum að geta verslað okkar nauðsynjar dags daglega. Kurteisi og þakklæti kostar ekkert til þeirra sem leggja sjálfa sig í hættu fyrir okkur hin.
Sýnum hvort öðru virðingu og tillitssemi og þá komumst við saman í gegnum þetta allt saman. Gætum ýtrustu varkárni og fylgjum öllum þeim reglum sem hafa verið settar, bæði fyrir okkar hag og þeirra sem standa vaktina fyrir okkur hin.
Það er líka mikilvægt að atvinnurekendur tryggi öryggi í starfsumhverfi verslunarfólks og fólks í þjónustu. Nú sem aldrei fyrr er brýnt að við verndum verslunarfólkið okkar.
Við erum öll í þessum saman!
Verslunarmannafélag Skagafjarðar
/Aðsent