Tæplega 700 stúlkur í 112 liðum eru skráðar til leiks á Steinullarmóti

Frá Landsbankamóti 2016. Mynd: ÓAB.
Frá Landsbankamóti 2016. Mynd: ÓAB.

Stúlknamót Tindastóls í fótbolta fer fram aðra helgi, 26.-27. júní nk. og kallast nú Steinullarmótið eftir nýjum bakhjarli þess. Mótið er ætlað stúlkum í 6. flokki og leikinn er fimm manna bolti. Mikill undirbúningur liggur að baki slíkum mótum og ekki fara þau fram án sjálfboðaliða sem að þeim koma á margvíslegan hátt. Feykir sendi barna- og unglingaráði knattspyrnudeildar Tindastóls nokkra spurningar og forvitnaðist um ráðið, undirbúninginn og framkvæmd mótanna tveggja sem Tindastóll stendur fyrir en Króksmót, fótboltamót fyrir stráka, fer fram í ágúst. Í ráðinu sitja Haukur Skúlason, Íris Ósk Elefsen, Guðbjörg Óskarsdóttir, Sigþrúður Jóna Harðardóttir, Jóhann Sigmarsson og Helgi Freyr Margeirsson.

-Barna- og unglingaráðið var stofnað árið 2019 og fékk fjárhagslegt sjálfstæði árið 2020 og hefur því ekki starfað lengi en við sjáum fyrir okkur góða og mikla uppbyggingu næstu árin. Við sinnum öllu almennu starfi yngri flokka knattspyrnudeildar Tindastóls ásamt því sem við höldum utan um skipulagningu sumarmótanna, þ.e. Steinullarmótsins og Króksmótsins ásamt góðum hóp af fólki sem er tilbúið til að starfa fyrir deildina.

Hvað getið þið sagt mér um Steinullarmótið 2021?
-Steinullarmótið er ætlað 6. flokki stúlkna og er haldið á Sauðárkróki að jafnaði síðustu helgina í júní ár hvert. Mótið er nú haldið í 16. skiptið en fyrstu árin var það ætlað bæði 6. og 7. flokki stúlkna en hefur eingöngu verið ætlað 6. flokki frá árinu 2016.

Fyrstu leikir mótsins hefjast kl. 9 laugardaginn 26. júní og verður spilað fram eftir degi. Salka Sól og Helgi Sæmundur munu svo stjórna kvöldvöku um kvöldið þar sem búast má við að verði mikið stuð. Aftur verður svo spilað frá kl. 9 á sunnudeginum 27. júní og er reiknað með að mótið klárist um kl. 15.

Margir af þátttakendum mótsins eru að stíga sín fyrstu skref í fótboltanum og er mikilvægt að upplifun þeirra sé góð. Keppendur eru byrjendur og margir af okkar dómurum einnig. Það er því mikilvægt að allir taki tillit til þessa og leyfi þeim að læra af þessari upplifun.

Mótshelgina má sjá mikla aukningu á fólki í bænum, allar götur fullar og mikið líf og fjör. Mótið skiptir því ekki bara máli fyrir knattspyrnudeildina heldur einnig fyrir samfélagið okkar í heild.

Hvernig hefur undirbúningur gengið og í hverju felst hann?
-Undirbúningur hófst í raun um leið og Steinullarmótinu lauk árið 2020, þá aðallega með því að setjast niður og punkta hjá sér hvað maður vill gera öðruvísi á næsta móti. Það má þó segja að undirbúningurinn hafi hafist fyrir alvöru í janúar en þá var opnað fyrir skráningar á mótið. Við fundum fyrir því að félög voru heldur seinni við að skrá sig á mótið í ár, sem er eðlilegt miðað við það umhverfi sem heimsfaraldurinn hefur gefið okkur.

Við höfum öfluga einstaklinga í mótsstjórninni sem öll hafa reynslu af vinnu á mótunum okkar. Öll vinnan við mótið er unnin í sjálfboðavinnu og er það alls ekki sjálfsagt að fá svona góðan hóp með í þetta verkefni.

Verkefnin eru fjölbreytt og mörg. Helstu verkefni eru öflun upplýsinga frá skráðum félögum, innheimta skráningargjalda, skipulagning kvöldvöku, uppsetning vakta, niðurröðun á gististaði, innkaup aðfanga, verðlaunagripa og ýmis önnur verkefni sem öll eru jafn mikilvæg í keðjunni.

Hvernig er þátttaka?
-Mótið í ár er það stærsta til þessa frá því 2015 en þá var það einnig ætlað 7. flokki stúlkna. Tæplega 700 stúlkur í 112 liðum eru skráðar til leiks frá 20 félögum.

Það er virkilega gaman að sjá hversu góðar móttökurnar eru og að áhuginn sé að aukast ár frá ári. Nokkur félög eru að koma til okkar í fyrsta skiptið á mótið og við vonum að upplifunin standi undir væntingum.

Hversu mikilvægt er þetta mót fyrir félagið og knattspyrnuna á Króknum?
-Þetta mót ásamt Króksmótinu, sem haldið er í ágúst, eru stærstu einstöku fjáraflanir félagsins. Tekjur mótanna skiptast á milli barnastarfsins og meistaraflokkanna.

Fyrir barnastarfið eru mótin grundvöllurinn að því að reksturinn gangi upp og að sú uppbygging sem við sjáum fyrir okkur gangi eftir. Við reiknum með að tæplega 40% af tekjum barna- og unglingaráðs komi frá mótunum en við gátum því miður ekki haldið Króksmótið í fyrra vegna samkomutakmarkana. Það er því ljóst að mótin skipta starfið í heild gífurlega miklu máli sem og að það hefur jákvæð áhrif á ímynd sveitarfélagsins ef vel til tekst.

Mótin gerast ekki af sjálfu sér, hvernig er þetta mót mannað?
-Mikil vinna hefur átt sér stað hjá mótsstjórninni við skipulag og undirbúning síðastliðnar vikur og mánuði. Mótshelgin sjálf er þó mannaflafrek og undanfarin ár hefur verið erfitt að manna vaktir helgarinnar. Auk dómgæslu og starfa mótsstjórnar eru 150 vaktir sem þarf að manna. Vaktirnar eru flestar 2-3 klukkustundir og snúa að vöktum í sjoppu, matartímum, eftirliti á gistitöðum og kvöldvöku. Þá erum við líka með vaktir sem iðkendurnir okkar geta sinnt, til að mynda við aðstoð í sjoppu og hóp af börnum sem sjá um að safna saman úrslitum leikja frá dómurum.

Við höfum biðlað til foreldra okkar iðkenda sem margir hverjir hafa verið snöggir til að skrá sig á vaktir. Eins hafa aðilar sem eiga uppkomin fótboltabörn haft samband og boðið fram krafta sína. Hins vegar á enn eftir að manna töluvert af vöktum og er öll hjálp vel þegin. Margt smátt gerir eitt stórt og saman getum við gert mótið að skemmtilegri upplifun fyrir alla sem að því koma.

Eitthvað sem þið viljið koma á framfæri?
-Við höfum fundið mikinn meðbyr undanfarið ár og vonum að sem flestir séu tilbúnir til að aðstoða við að gera Steinullarmótið sem og Króksmótið að eftirsóknarverðum mótum til að koma á. Mikil uppsveifla er í fótboltanum og fjöldi iðkenda hefur aldrei verið meiri. Á milli 40-50% barna á aldrinum 3-16 ára á Sauðárkróki eru skráð hjá okkur í fótboltann í sumar og því er ljóst að áhuginn er gríðarlega mikill. Eins hafa börn annars staðar úr firðinum verið að sækja hjá okkur æfingar. Uppbyggingamöguleikarnir eru miklir og við horfum jákvæð til komandi ára. Þá vlijum við þakka Steinull fyrir stuðninginn, hann er mjög mikilvægur. Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir