Tekin verði upp fyrirframgreiðsla námsstyrkja
Allsherjar- og menntamálanefnd hefur nú lokið afgreiðslu á máli um námslán og námsstyrki til annarar umræðu en í meðförum nefndarinnar hefur helst verið lögð til sú breyting að námsaðstoð verði fyrirframgreidd og greidd út mánaðarlega, sæki námsmenn um það.
Þá var lagt til að vextir verði að hámarki 2,5% að viðbættu 0,5% álagi og að aukið svigrúm til doktorsnáms verði veitt. Heimilt verður að afskrifa afborganir af námslánum þeirra sem verða óvinnufærir vegna slyss eða veikinda. Einnig verður Lánasjóði íslenskra námsmanna skylt að veita nákvæmar upplýsingar um stöðu lána með reglulegum hætti.
Breytingarnar hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð, einkum upptaka á samtímagreiðslum námslána sem kallar á tilfærslu á kostnaði á milli ára. Gert er ráð fyrir að einskiptiskostnaður vegna samtímagreiðslna nemi tæplega 5 milljörðum króna, en allsherjar- og menntamálanefnd hefur lagt til að fjáraukalögum verði breytt til samræmis.
Sjá nánar HÉR