Tengja þarf fráveitu vestan Blöndu við hreinsistöð
Íbúar Flúðabakka 1 og 3 á Blönduósi hafa sent sveitarstjórn Blönduósbæjar bréf þar sem skorað er á sveitarstjórn að hefja sem fyrst framkvæmdir við fráveitumál vestan Blöndu. Í bréfinu lýsa íbúarnir yfir áhyggjum sínum af frárennslismálum frá þessum húsum.
Byggðaráð Blönduósbæjar tók undir áhyggjur íbúanna en ráðið fjallaði um bréfið á fundi sl. miðvikudag. Í fundargerð byggðaráðs segir að ljóst sé að sveitarfélagið þurfi að ráðast í að tengja fráveitu vestan Blöndu við hreinsistöðina.