Þingsályktun um rammaáætlun lögð fyrir Alþingi

Horft yfir Villinganesvirkjun og lónið úr lofti. Mynd úr skýrslu um Villinganesvirkjun sem virkjunarkost til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar á vefsíðunni Ramma.is.
Horft yfir Villinganesvirkjun og lónið úr lofti. Mynd úr skýrslu um Villinganesvirkjun sem virkjunarkost til umfjöllunar í 3. áfanga rammaáætlunar á vefsíðunni Ramma.is.

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur að höfðu samráði við Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ákveðið að leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um vernd og orkunýtingu landsvæða. Tillagan er samhljóða niðurstöðum verkefnisstjórnar 3. áfanga rammaáætlunar, sem skilaði ráðherra lokaskýrslu sinni síðastliðinn föstudag. Greint er frá þessu á vef Umhverfisráðuneytisins

„Það er góður áfangi að geta lagt fram þingsályktun um rammann á næstu dögum og ég er ánægð að allar tímasetningar stóðust hjá verkefnisstjórninni. Þá tel ég mikils virði að Alþingi fái niðurstöðunnar til efnislegrar meðferðar sem fyrst,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra á vef Umhverfisráðuneytisins. 

Lagt er til að átta nýir virkjunarkostir bætist í orkunýtingarflokk áætlunarinnar, tíu virkjunarkostir fari í verndarflokk og tíu í biðflokk. Þá er lagt  til að Skatastaðavirkjun C og D, Villinganesvirkjun og Blöndu – veita úr Vestari Jökulsá verði í verndunarflokki og að Blöndulundur bætist í orkunýtingarflokk áætlunarinnar.  Hér má sjá frétt Feykis um niðurstöður verkefnisstjórnar 3. áfanga rammaáætlunar frá síðastliðnum föstudag. 

 

Fleiri fréttir