Þóra Kristín tekin til starfa
Nýr blaðamaður, Þóra Kristín Þórarinsdóttir, er tekin til starfa hjá Feyki. Hún mun flytja fréttir af svæðinu, bæði fyrir blað og vef, og geta Norðvestlendingar því átt von á því að sjá hana á ferli með myndavélina á lofti.
Þóra Kristín er frá Frostastöðum í Blönduhlíð, yngsta dóttir þeirra Þórarins Magnússonar og Söru Regínu Valdimarsdóttur.
Þóra Kristín útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 2014. Hún ferðaðist um Evrópu þar til hún hóf störf hjá Nýprent um áramót þar sem hún hefur sinnt störfum gjaldkera og því ættu þeir sem hafa átt leið til starfstöðvar Feykis og Nýprents að þekkja vel til hennar. Í haust stefnir hún svo á vit ævintýranna á ný en þá ætlar hún að ferðast um Asíu.
„Ég er rosalega spennt fyrir að fá að spreyta mig sem blaðamaður hjá Feyki. Ég er viss um að þetta muni kenna mér margt og gefa mér góða reynslu,“ segir Þóra Kristín.
Netfang Þóru Kristínar er thora@nyprent.is.