Þórður Guðsteinn efstur í prófkjöri Pírata
Prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga lauk í gær. Kosningar voru rafrænar og fóru fram dagana 8. til 15. ágúst. Alls gáfu 17 kost á sér á lista og 95 greiddu atkvæði, eða 72,5% Pírata í kjördæminu. Niðurstöður prófkjörsins hafa verið birtar á vef flokksins og eru þær eftirfarandi:
- Þórður Guðsteinn Pétursson
- Gunnar Jökull Karlsson
- Eiríkur Þór Theódórsson
- Eva Pandora Baldursdóttir
- Gunnar I. Guðmundsson
- Halldóra Sigrún Ásgeirsdótti
- Hafsteinn Sverrisson
- Herbert Snorrason
- Vigdís Pálsdóttir
- Elís Svavarsson
- Þorgeir Pálsson
- Hildur Jónsdóttir
- Þráinn Svan Gíslason
- Fjölnir Már Baldursson
- Gunnar Örn Rögnvaldsson
- Ómar Ísak Hjartarson
- Egill Hansson.
Kjördæmisráð á eftir að fara yfir röðun í samráði við frambjóðendur. Þegar því er lokið verður endanlegur listi birtur. Sá listi fer í staðfestingarkosningu þar sem allir Píratar á landinu fá að greiða atkvæði um hvort listinn verður notaður í komandi alþingiskosningum.