Þriðju verðlaun fyrir Markaappið
Lokahóf Nýsköpunarkeppni grunnskólanna var haldið í Háskólanum í Reykjavík síðastliðinn sunnudag, 22. maí. Það voru 39 hugmyndaríkir krakkar úr 5. – 7. bekk sem komust áfram í vinnustofur og í úrslit keppninnar með samtals 27 hugmyndir. Meðal þeirra voru fjórir nemendur Varmahlíðarskóla með þrjár hugmyndir.
Tveir nemendur í 6. bekk Varmahlíðarskóla þeir Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinsson hlutu þriðju verðlaun fyrir hugmynd sína, Markaskráarappið. Einnig áttu þeir hugmynd sem þeir kölluðu tappahnífinn og komst áfram í keppninni. Þá ættu þær Lilja Diljá Ómarsdóttir og Flóra Rún Haraldsdóttir í 5. bekk hugmynd að takka- og inniíþróttaskóm sem komst áfram í keppninni. Rætt verður við þá Óskar Aron og Indriða Ægi í 20. tölublaði Feykis sem kemur út á morgun.
Vinnustofurnar stóðu yfir í þrjá daga sem hófust á fimmtudegi. Börnin unnu í tvo daga í HR að hugmyndum sínum, útbjuggu frumgerðir og kynningarspjöld sem voru til sýnis á lokahófinu. Þriðja daginn unnu börnin í vinnusmiðju í Arion banka að fjármálalæsi og öðru því tengdu.
„Nemendurnir komu frá 38 skólum alls staðar að af landinu, en samtals bárust keppninni 1750 hugmyndir frá flestum grunnskólum landsins. Það má því með sanni segja að framtíðin sé björt í nýsköpun landsins,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu um keppnina.