Þrír leikir á fjórum dögum
Framundan eru þrír leikir á fjórum dögum hjá meistaraflokkum Tindastóls í körfubolta, þar af tveir bikarleikir, eins og fram kemur á heimasíðu félagsins. Fyrsti leikurinn er hjá meistaraflokki karla sem mætir Snæfelli í Síkinu í kvöld og hefst leikurinn kl. 19:15.
Á laugardaginn mætir Helga Einars með sitt lið og spila KR stelpurnar gegn heimastúlkum í meistaraflokki kvenna. Þetta er annað árið í röð sem stelpurnar okkar dragast á móti úrvalsdeildarliði, auk þess að fá heimaleik, í fyrstu umferð bikarkeppni. Stelpurnar hefja leik kl: 16.00.
Á sunnudeginum endar meistaraflokkur karla þessa leikjatörn og tekur á móti Grindavík í bikarnum. Strákarnir lögðu Grindavík í Röstinni á mánudagskvöldið síðasta. Á heimasíðu Tindastóls eru allir hvattir til að mæta og styðja við sitt fólk.