Þrjú sveitarfélög á NLV tóku þátt

Sundlaug Sauðárkróks.
Sundlaug Sauðárkróks.

Hreyfiviku UMFÍ lauk sl. sunnudag. Komst Ísland á topp tíu lista í Evrópu yfir fjölda viðburða en um fimmhundruð viðburðir fóru fram víðs vegar um landið. Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að viðburðir þar hafi verið vel sóttir og alls hafi um þúsund manns lagt leið sína í Íþróttamiðstöðina þar.

Þrjú sveitarfélög á Norðurlandi vestra tóku þátt í sundkeppni milli sveitarfélaga og af þeim var Húnaþing vestra efst á blaði, eða í 7. sæti með 137 synta metra á hvern íbúa, alls 75 km og voru það 170 einstaklingar sem syntu. Í 8. sæti var Blönduós með 95 m á hvern íbúa, samtals 75 km. Skagafjörður var svo í 14. sæti með 46 m á hvern íbúa, alls 117 km. Alls tóku 32 sveitarfélög þátt í keppninni. 

Fleiri fréttir