Þröstur og Kolbrún taka við rekstri Ljósheima
Nýir aðilar taka við rekstri félagsheimilisins Ljósheima í Skagafirði en Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd Svf. Skagafjarðar samþykkti á fundi í morgun samning við Þ. Jónsson slf., fyrir hönd Þrastar Jónssonar og Kolbrúnar Jónsdóttur.
Rekstur félagsheimilisins Ljósheima var auglýstur til umsóknar með umsóknarfresti til og með 26. júní 2016. Í fundargerð Atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 1. júlí kemur fram að þrjár umsóknir hafi borist. Voru þær frá Kvenfélaginu Framför, Þresti Jónssyni og Kolbrúnu Jónsdóttur og Þorvaldi E. Þorvaldssyni og Kristínu Snorradóttur.
Á þeim fundi var samþykkt að ganga til umræðna við Þröst og Kolbrúnu um rekstur á félagsheimilinu. Nefndin lagði áherslu á að í samningi við nýjan rekstraraðila yrði gert ráð fyrir að Kvenfélagið Framför geti sinnt starfsemi sinni áfram á svipaðan máta og verið hefur.