Þú getur orðið blóðgjafi

Blóðbankabíllinn verður á Sauðárkróki við Skagfirðingabúð í dag frá kl. 12:00-17:00 og á morgun fimmtudaginn 08.sept. frá kl. 09:00-11:30. Þá fer hann á Blönduós og verður við N1 frá kl. 14:00-17:00. Til að mæta þörfum samfélagsins þarf Blóðbankinn um 16.000 blóðgjafa á ári eða 70 blóðgjafa á dag svo það er um að gera að mæta og gefa blóð.

Á heimasíðu Blóðbankans segir að haft sé samband við 8 -10.000 virka blóðgjafa á ári hverju og gefa þeir u.þ.b. 15.000 blóðgjafir en traust og örugg blóðgjöf byggir á heilbrigðum blóðgjöfum. Þeir sem eru á aldrinum 18 - 65 ára, yfir 50 kg að þyngd og heilsuhraustir geta gerst blóðgjafar. Karlar geta gefið heilblóð á 3ja mánaða fresti og konur á 4ra mánaða fresti og virkir blóðgjafar geta gefið blóð til 70 ára aldurs. Gott heilsufar er því forsenda blóðgjafar og mikilvægt að kynna sér reglur sem gilda varðandi blóðgjafir.

Við fyrstu komu gefur fólk ekki blóð heldur eru einungis tekin blóðsýni til blóðflokkunar- og rauðkornamótefnaskimunar, járnbirgðamælingar, almennra blóðrannsókna og skimunar fyrir lifrarbólgu B og C auk HIV.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir