Tímalaust og notaleg tónlist
Geisladiskurinn Orð með þeim Róberti Óttarssyni og Guðmundi Ragnarssyni kemur út þann 6. október nk. Í tilefni þess ætla þeir félagar að leggja land undir fót ásamt hljómsveit og halda þrenna útgáfutónleika, á Mælifelli 10. október kl. 21, 11. október í Rauðku á Siglufirði kl. 21 og í Iðnó í Reykjavík 17. október kl. 21.
Róbert og Guðmundur lögðu upp með að fá heimafólk til liðs við sig við að koma geisladisknum á koppinn og tókst það að að mestu og segjast þeir vera ánægðir með útkomuna. Allt efni disksins er frumsamið, Guðmundur semur lög og nokkra texta en aðrir textahöfundar eru Hilmir Jóhannesson, Engilráð Sigurðardóttir, Ársæll Guðmundsson, Gunnar Sandholt og Herdís Sæmundardóttir.
En hvernig myndu þeir lýsa tónlistinni? – „Einhverskonar sveitapopp, lög sem maður syngur með en þau hafa flest orðið til í því umhverfi - þar sem allir sitja saman að syngja,“ útskýrir Guðmundur.
„Mínir vinir segja diskinn notalegan. Hann hefur verið að rúlla heima hjá mér og fólki finnst notalegt að hafa diskinn á. Þú grípur lögin kannski ekki alveg í fyrstu en eftir tvær þrjár spilanir þá hrífa þau þig með sér,“ bætir Róbert við. Guðmundur tekur undir og segir tónlistina vera tímalausa og notalega.
Feykir hitti Guðmund og Róbert og spurði þá í út í tónlistina, samstarfið og undirbúninginn fyrir komandi útgáfutónleika. Viðtalið í heild sinni er í Feyki sem kom út í gær.
Að neðan má hlusta á titillag geisladisksins. Hægt er að fylgjast með þeim félögum á facebook síðunni ORÐ.
http://youtu.be/oy0blKky-mA