TímOn-félagar í fjórðu umferð Íslandsmeistaramótsins

Dagana 28. - 30. ágúst fer fram fjórða umferðin í Íslandsmeistaramótinu í rallý. Alþjóðarallið sem í daglegu tali er kallað Rallý Reykjavík er það 35. í röðinni en keppnin er frábrugðin öðrum keppnum ársins þar sem hún tekur yfir þrjá daga í stað eins til tveggja. Þeir TímOn-félagar Aðalsteinn Símonarson úr Borgarnesi og Baldur Haraldsson frá Sauðárkróki mæta galvaskir til keppni með 16 stiga forskot eftir sigur í síðustu keppni.

Leikar hefjast seinnipart fimmtudagsins 28. ágúst í nágrenni Reykjavíkur en endað í Glaðheimum í Kópavogi. Er það þriðja árið sem ekið er svokölluð áhorfendaleið um Glaðheima, samkvæmt fréttatilkynningu er það einstaklega skemmtileg leið fyrir fólk til að koma að horfa á.

Vangaveltur í viðsnúningi.

Á fimmtudeginum leggja keppendur að baki 105 km áður en næturhlé verður tekið. Þegar talað er um kílómetra er átt við keppnisleiðar og þá vegalengd sem tekur að fara á milli þeirra.

Föstudagurinn 29. ágúst er síðan langur dagur fyrir áhafnirnar og þjónustulið þeirra en dagurinn hljóðar upp á 512 km í akstri. Lagt verður af stað kl 7:00 úr Reykjavík og halda að Heklu. Ekið verður í kringum hana en endað eins og fyrra kvöldið í Glaðheimum í Kópavogi. Fyrir þá sem ekki komust að horfa fyrra kvöldið er upplagt að koma á föstudeginum.

Laugardagurinn hljóðar upp á 335 km, þó nokkuð styttra en á föstudeginum. Fyrsta leið er um Hengilsvæðið, síðan er haldið upp í Borgarfjörðinn, m.a. upp á Kaldadal. Á þeirri leið er allra veðra von, ekki er nema ár síðan einungis var hægt að aka hálfan Kaldadalinn vegna óvæntrar snjókomu en Kaldidalur er þriðji hæsti fjallvegur landsins, liggur 720 metra yfir sjó. Leiðirnar verða síðan eknar til baka og endað við Djúpavatn um 14:30,“ segir um dagskrá Rallý Reykjavíkur.

Breskir hermenn og 77 ára gamall ökuþór

Það verða 18 áhafnir sem mæta til leiks í keppnina þar af fimm erlendar áhafnir frá breska hernum. „Er afskaplega gaman að fylgjast með þeim en jepparnir eru með stýrið hægra megin og skapar það oftar en ekki skemmtilegt fát og fum starfsmanna tímavarðastöðvanna. Munu jepparnir aka síðastir, er það gert af öryggisástæðum þar sem þeir eru hægari en venjulegir rallýbílar. Einnig er gaman að geta þess að Örn Ingólfsson, sem ávallt gengur undir nafninu Dali, er skráður til leiks en með honum verður Óskar Jón Hreinsson. Aka þeir á Trabant. Dali undirstrikar rækilega að rallý er ekki bara fyrir ungt fólk að fá útrás en hann varð 77 ára gamall núna um miðjan ágúst, “ segir í tilkynningunni.

Lítið þurfti að lagfæra bíl þeirra Baldurs og Aðalsteins og hafa þeir kappar hafa jafnað sig eftir árekstur í undirbúningi Skagafjarðarralls, eins og greint var frá á vef Feykis.is.  Munu þeir hefja keppnina fyrstir í rásröð með Íslandsmeistara síðasta árs, Henning og Árna, næsta á eftir sér. Takist þeim Aðalsteini og Baldri að sigra í þessari keppni eru þeir öruggir með Íslandsmeistaratitilinn í ár en hvorki Skagfirðingi né Borgfirðingi hefur áður tekist að landa þeim titli.

Fleiri fréttir