Tindastóll tapar í Iceland Glacial höllinni
Lið Tindastóls varð undir í viðureigninni gegn Þór Þorlákshöfn sl. föstudagskvöld þegar Stólarnir sóttu Þórsara heim í Iceland Glacial höllinni. Úrslit urðu 92 – 66. Samkvæmt frétt á Karfan.is var mæting stuðningsmanna liðanna til fyrirmyndar og fjölmennt í höllinni.
Á Karfan.is segir að í fyrsta leikhluta hafi verið útlit fyrir spennandi leik og hann spilast jafnt hvað stigaskor varðar. Davíð Arnar Ágústsson smellti niður þriggja stiga körfu fyrir Þórsara undir leikhlutans og kom þeim yfir. Stólarnir voru þó fljótir að jafna leikinn en þegar hálf mínúta var eftir af leikhlutanum svaraði Pétur Rúnar Birgisson með þristi. Hann kom sér svo á vítalínuna í lokasekúndunum eftir óheppilega villu hjá Halldóri Garðari Hermannssyni og setti bæði vítin niður. Í lok leikhlutans leiddu Stólarnir, 24 – 26.
Tindastóls menn virtust ætla fara vel af stað í öðrum leikhluta en það lifði skammt. Davíð Arnar setti niður þrist númer tvö og Þórsarar tóku við stjórninni á leiknum. Ingvi Rafn Ingvarsson fékk sína þriðju villu um miðjan leikhlutann og var þá kallaður í smá pásu á bekknum. Darrell Lewis átti síðasta innlegg leikhlutans þegar hann lokaði fyrri hálfleik með þriggja stiga körfu og staðan 46 - 40 fyrir hléið.
Í þriðja leikhluta hélst munurinn í kring um 10 stig, þar til Þórsararnir Ragnar Örn Bragason og Þorsteinn Már Ragnarsson skoruðu sinn hvorn þristinn. Þá tók Pieti Poikola, þjálfari Tindastóls, leikhlé til að tala aðeins við sína menn. Þórsarar héldu þó áfram að setja stór skot. Á lokamínútunni braut Davíð á Viðari Ágústssyni og í framhaldinu þurfti að stilla til friðar á milli manna. Staðan í lok leikhlutans var 69 – 54.
Lukkan var áfram öll Þórsara megin í fjórða leikhluta. Ragnar Nathanaelsson fékk áminningu fyrir að blokka Lewis. Pieti tók tvö leikhlé til að ræða við sína menn en þegar kom að leikslokum var staðan 92 – 66.
Þór Þ.-Tindastóll 92-66 (24-26, 22-14, 23-14, 23-12)
Tindastóll: Jerome Hill 13/10 fráköst, Darrel Keith Lewis 11/4 fráköst, Darrell Flake 8, Viðar Ágústsson 8, Arnþór Freyr Guðmundsson 8, Pétur Rúnar Birgisson 8/4 fráköst, Pálmi Geir Jónsson 6, Helgi Rafn Viggósson 2, Helgi Freyr Margeirsson 2, Ingvi Rafn Ingvarsson 0, Sigurður Páll Stefánsson 0, Finnbogi Bjarnason 0.