Tindastóll - Þróttur í dag í Bestu deild kvenna
Stelpurnar í Tindastóli mæta Þrótti Reykjavík á Sauðárkróksvelli í dag kl. 18. Núna þarf Tindastóll allan stuðning sem í boði er til að forða sér frá fallsvæðinu. Mætum öll. Það verður börger og stemning. hmj
Fleiri fréttir
-
Samningur undirritaður við Mennta- og barnamálaráðuneytið vegna FORNOR
Þann 1. desember undirritaði Sveitarfélagið Skagaströnd samning við Mennta- og barnamálaráðuneytið um stuðning við forvarnaverkefnið FORNOR – Forvarnaáætlun Norðurlands vestra. Verkefnið hlaut 26 milljóna króna styrk og byggir á metnaðarfullri umsókn sveitarfélagsins sem miðar að því að efla farsæld barna og bæta þjónustu fyrir börn og fjölskyldur.Meira -
Marta með stórleik í naumu tapi gegn meisturum Hauka
Stólastúlkur tóku á móti Íslandsmeisturum Hauka í Síkinu í gær í 10. umferð Bónus deildarinnar. Leikurinn var hin besta skemmtun, hraður og fjörugur þar sem bæði lið settu niður hreint ótrúlega skot. Gestirnir leiddu lengstum en Stólastúlkur börðust eins og ljón þrátt fyrir að vera án yfirfrákastara síns, Maddíar Sutton, og réðust úrslitin í raun ekki fyrr en á lokasekúndunum. Úrslitin 89-93 fyrir lið Hauka.Meira -
Einstakur leikur fyrir Einstök börn í Síkinu á föstudaginn
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 03.12.2025 kl. 09.56 gunnhildur@feykir.isTindastóll fær ÍA í heimsókn föstudaginn 5.desember og hefjast leikar klukkan 19:15. Leikurinn er þó ekki alveg hefðbundinn deildarleikur heldur er leikurinn bangsaleikur. Leikurinn virkar þannig að þegar Tindastóll skorar fyrstu þriggja stiga körfuna í leiknum þá taka áhorfendur sig til og henda böngsum inn á völlinn sem leikmenn safna svo saman og gefa Einstökum börnum.Meira -
Útlit fyrir að Fljótagöng séu komin í forgang
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 03.12.2025 kl. 08.58 oli@feykir.isFjölmiðlar greina frá því að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hafi sett Fljótagöng í forgang en hann mun í dag kynna þingsályktunartillögu um nýja samgönguáætlun fyrir tímabilið 2026-2040 og aðgerðaáætlun til fimm ára. Í frétt RÚV segir að ríkisstjórnin hafi boðað til blaðamannafundar í dag um nýja samgönguáætlun og stofnun innviðafélags til að flýta stærri samgönguframkvæmdum.Meira -
Sterkari saman - sameiningin skiptir máli | Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Þessa dagana stendur yfir atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaganna Dalabyggðar og Húnaþings vestra. Undirritaður hefur setið í sveitarstjórn Dalabyggðar frá árinu 2018 og var oddviti til ársins 2024. Fyrir þann tíma var ég varamaður í sveitarstjórn og þekki því ágætlega til reksturs og áskorana sveitarfélagsins síðasta áratuginn.Meira
