Tónlistarskólarnir á jólaróli
feykir.is
Skagafjörður
11.12.2018
kl. 14.46
Í dag klukkan 17:00 heldur Tónadans jólahátíð sína í Miðgarði. Þar koma fram krúttakór, barnakór, bjöllukór, strengja- og jassballettnemendur sem stundað hafa nám hjá Tónadansi á haustönninni.
Kórarnir munu svo koma fram með Kór Félags eldri borgara á jólatónleikum í Miklabæjarkirkju fimmtudagskvöldið 13. desember klukkan 20:00 þar sem ungir og aldnir munu syngja saman og einnig hver fyrir sig.
Þá eru jólatónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar framundan og verða sem hér segir:
- Í Höfðaborg á Hofsósi miðvikudaginn 12. desember klukkan 17:00.
- Í matsal Árskóla fimmtudaginn 13. desemberr klukkan 16:30 og 18:00.
- Í Miðgarði í Varmahlíð föstudaginn 14. desember klukkan 16:00 og 18:00.