Töpuðu í dramatískum lokaleik

Strákarnir okkar/Mynd: www.karfan.is
Strákarnir okkar/Mynd: www.karfan.is

Strákarnir okkar í U20 ára landsliði karla í körfuknattleik töpuðu í gær fyrir Svartfjallalandi í úrslitum B-deildar Evrópumótsins sem fram fór í Grikklandi og silfurverðlaun staðreynd.

Svartfjallaland var með yfirhöndina mest allan leikinn og náðu mest 27 stiga forskoti. Okkar menn létu það ekki stoppa sig og gáfu í er leið á seinni hálfleikinn. Þegar tvær mínútur voru eftir minnkuðu þeir muninn í tvö stig en á lokasekúndum leiksins náðu íslensku strákarni að jafna leikinn eftir ævintýralega þriggja stiga körfu frá Kristni Pálssyni og framlenging raunin. Framlengingin var ekki fyrir hjartveika en liðin skiptust á um forrystu en á lokasekúndunum voru Svartfjalllendingar með tveggja stiga forskot og fengu íslensku strákarnir tækifæri til að jafna eða komast yfir í tvígang en misnotuðu bæði skotin og sigur í höfn fyrir andstæðinginn.
Skagfirðingarnir tveir sem í liðinu eru, komu báðir við sögu í leiknum en mismikið þó. Pétur Rúnar Birgisson lék í 29 mínútur og skoraði 17 stig og tók eitt sóknarfrákast. Viðar Ágústsson átti rúmar 13 mínútur í leiknum en á þeim tíma tók hann eitt sóknarfrákast og skoraði úr einu þriggja stiga skoti.
Frekar er sagt frá leiknum á www.karfan.is.


Árangur liðsins er stórkostlegur en með silfrinu tryggðu þeir sér sæti í A-deild Evrópumótsins á næsta ári.

Fleiri fréttir