Tveir nýir liðsmenn í Útsvarsliði Skagafjarðar
Nokkur endurnýjun verður í Útsvarsliði Skagfirðinga þetta árið en liðið munu skipa þau Indriði Þór Einarsson, sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs svf. Skagafjarðar, Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri Feykis, auk reynsluboltans Guðrúnar Rögnvaldardóttur, framkvæmdastjóra Staðlaráðs Íslands.
Fyrsta viðureign liðsins verður á móti Ísafirði föstudaginn 23. október. Sem fyrr er keppnin í beinni útsendingu á RÚV. Þessi þáttaröð er sú níunda og í ár taka 24 lið þátt í keppninni.