Tvö í Skagafirði fengu verðlaun úr eldvarnaátaki

Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fer fram um allt land í lok nóvember ár hvert en þá heimsækja slökkviliðsmenn börn í 3. bekk grunnskóla landsins og fræða þau um eldvarnir. Þeim gefst jafnframt kostur á að taka þátt í eldvarnagetraun og nú á dögunum fengu tvö börn í Skagafirði viðurkenningar vegna átaksins.
Á heimasíðu LSS segir að þegar börnin eru heimsótt í skólana fái þau heim með sér handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins og söguna af Brennu-Vargi og Loga og Glóð. Þeim gefst jafnframt kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni en heppnir þátttakendur í henni fá jafnan afhent vegleg verðlaun á 112-deginum, 11. febrúar.
Að sögn Sigurðar Bjarna Rafnssonar, varaslökkviliðsstjóra Brunavarna Skagafjarðar, tókst þó ekki að afhenda verðlaunin í Skagafirði fyrr en í síðustu viku vegna Covid áhrifa. Tvö heppin í Skagafirði voru dregin úr potti réttra lausna hjá LSS þau Monika Rut Garðarsdóttir í Grunnskólanum austan Vatna á Hofsósi og Hólmar Thor Jónsson Árskóla á Sauðárkróki. Fengu þau afhent viðurkenningar og 10.000 króna inneign hjá Spilavinum.