Umferðin getur tekið sinn toll

Maður getur aldrei farið of varlega
Maður getur aldrei farið of varlega

Margir verða á faraldsfæti þessa stærstu ferðahelgi ársins. Til að mynda eru bæjarhátíðir a.m.k. á átta stöðum og umferðin verður þung. Þegar svo ber við er mikilvægt að stíga létt á bensíngjöfina. Halda sig innan leyfilegs hámarkshraða og við þann umferðarhraða sem ríkir hverju sinni. Láta framúrakstur bíða betri tíma ef umferð er mikil enda ávinningur af honum lítill við þessar aðstæður. Í mesta lagi nokkrar bíllengdir en áhættan þeim mun meiri.

Muna þarf eftir bílbeltum, að skorða farangur, hafa rúður hreinar og nota sólgleraugu í bjartviðri. Bíllinn þarf auðvitað að vera í lagi, á góðum dekkjum með réttum loftþrýstingi og ökumaður úthvíldur.

Ef áfengi eða önnur vímuefni hafa verið höfð um hönd þarf náttúrlega ekki að minna á að eftir neyslu þeirra má ekki keyra. Margir flaska á því og setjast of fljótt undir stýri. Mjög mismunandi er milli einstaklinga hversu lengi líkaminn er að brjóta vímuefnin niður. Þumalputtareglan er að líkaminn sé klukkustund að eyða áhrifum af hverjum einföldum eftir að drykkju er hætt. Það getur því tekið allt að 12 til 18 tíma að brjóta niður sex stóra bjóra, áður en óhætt er að aka af stað.

Ef vínandamagn mælist 0,5 til 0,6 prómill í blóði, sem er lægsta gildi sem er sektað fyrir, þá er sektin kr. 70.000.- ásamt ökuleyfissviptingu í 2 mánuði. Það er þó lítilræði í samanburði við líkamstjón eða jafnvel banaslys sem viðkomandi getur valdið. Ölvaðir ökumenn eiga hlut að máli í þremur af hverjum tíu banaslysum hér á landi. Þá geta tryggingafélög átt rétt á krefja viðkomandi um endurgreiðslu tjónsins. Hlutfall endurkrafna vegna ölvaðra ökumanna árið 2012 var t.a.m. 67% og 26% vegna áhrifa lyfja, einkum ávana- og fíkniefna. Tæplega helmingur endurkrafna var gerður á hendur 25 ára og yngri og voru karlmenn þar í miklum meirihluta eða 82%.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún A. Þorsteinsdóttir í síma 860-5395

Fréttatilkynning frá VÍS

Fleiri fréttir