Umsóknum um félagslegt húsnæði fjölgar á NV

Könnun Varasjóðs húsnæðismála sem nýlega var birt á vef Velferðarráðuneytisins sýnir að í lok síðasta árs voru leiguíbúðir í eigu sveitarfélaga á Íslandi alls 4937 að tölu. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að umsóknum um félagslegt húsnæði hefur fjölgað um 16,3% á Norðurlandi vestra á milli ára og fjölgun á biðlistum milli ára nemur um 19%, sem er andstætt því sem er í flestum öðrum landshlutum.

Af einstökum landshlutum voru leiguíbúðir á hverja 100 íbúa næstflestar á Norðurlandi vestra, 2,8. Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra eiga samtals 200 leiguíbúðir. Þar af telst rúmlega helmingur, eða 104 íbúðir félagslegar leiguíbúðir, 28 leiguíbúðir fyrir aldraða, 10 fyrir fatlaða og 58 eru skilgreindar sem aðrar leiguíbúðir. Af einstökum sveitarfélögum voru leiguíbúðir á hvern íbúa næstflestar á landsvísu á Skagaströnd eða 6,53. Þar á eftir kemur Húnaþing vestra með 4,62 og síðan Blönduósbær með 3,73.

Spurt var um áform sveitarfélaganna um fækkun leiguíbúða. Í svörum kom fram að sveitarfélagið Skagafjörður hefði selt eina íbúð á síðasta ári og áformaði að selja tvær á þessu ári. Þar og á Skagaströnd var staðan á leigumarkaði í sveitarfélaginu talin í jafnvægi en í Húnaþingi vestra, Blönduósbæ og Húnavatnshreppi var talinn nokkur skortur á félagslegu leiguhúsnæði. Í Skagafirði er biðtíminn eftir félagslegu leiguhúsnæði að meðaltali 18 mánuðir, 3 mánuðir í Blönduósbæ og 12 mánuðir í Húnavatnshreppi.

Rekstrarvandi verulegur

Í könnuninni var komið inn á rekstrarvanda vegna leiguíbúða sveitarfélaganna og hvers eðlis rekstrarvandinn væri. Í Skagafirði var rekstrarvandinn talinn verulegur og einkum stafa af því að leigutekjur stæðu ekki undir rekstri og skuldir væru miklar, en einnig vegna þess að íbúðir stæðu auðar og vegna viðhaldskostnaðar. Hjá Húnaþingi vestra virðist vandinn einkum stafa af því að íbúðir standa auðar . Á Skagaströnd og í Húnavatnshreppi vegur þyngst að leigutekjur standa ekki undir kostnaði og viðhaldskostnaður er mikill.

Meðalleiga á íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélaganna er víðast hvar á landsbyggðinni undir 1000 krónum á fermetra. Á því eru samt allnokkrar undantekningar, einkum í stærri sveitarfélögum. Þannig er meðalleigugjald á fermetra rétt rúmar 1000 krónur í Sveitarfélaginu Skagafirði, í kringum 800 krónur í Húnaþingi vestra og á Skagaströnd, um 900 krónur í Blönduósbæ og um 450 krónur í Húnavatnshreppi.

Þetta er í þriðja sinn sem könnun af þessu tagi er gerð meðal sveitarfélaganna. Var hún framkvæmd með rafrænu sniði og tóku öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra nema Skagabyggð þátt í henni. Könnunina í heild má nálgast á heimasíðu Velferðarráðuneytisins.

Fleiri fréttir