Unnið hörðum höndum að því að koma fluginu aftur á til Sauðárkróks
feykir.is
Skagafjörður
30.01.2012
kl. 10.02
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra heimsótti Skagafjörðinn á laugardag og sat fund með heimamönnum, þar sem ræddir voru möguleikar þess að koma áætlunarflugi aftur í gang til Sauðárkróks. Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggðaráðs var fundurinn góður og menn einhuga um að leysa verkefnið.
Stefán segir að fleiri fundir verði haldnir í vikunni um málið og vonandi verði hægt að greina frá niðurstöðu um málið í næstu viku.
