Úrslitaþáttur Biggest Looser á morgun
Úrslitaþáttur Biggest Looser á Íslandi verður sendur út í beinni útsendingu frá Háskólabíói annað kvöld. Meðal keppenda er Stefán Ásgrímur Sverrisson á Sauðárkróki, sem hefur notið mikilla vinsælda hjá áhorfendum þáttanna.
Fyrsta sería þáttanna sló öll áhorfsmet á Skjá Einum á sínum tíma. Sýningar á annarri þáttaröð hófust 22. janúar sl. og hófu fjórtán einstaklingar keppni. Í þáttunum takast keppendur á við að breyta um lífstíl sem felst í hollu matarræði og mikilli hreyfingu. Markmiðið er að aðstoða þátttakendur við að breyta um lífsstíl til frambúðar.
Keppendur dvöldu í 10 vikur á heilsuhótelinu á Ásbrú, og fengu þar stuðning. Nú er komið að lokaþættinum og hefst útsending á honum kl. 20:10 annað kvöld. Á þessari slóð er hægt að velja milli nokkurra uppáhaldsatriða úr seríu 2.
Miðasala er hjá Sagafilm.