Úthlutað úr smávirkjanasjóði SSNV

Stjórn SSNV samþykkti á fundi sínum þann 4. desember sl. tillögu frá matsnefnd smávirkjanasjóðs SSNV um úthlutun styrkja úr sjóðnum. Smávirkjanaverkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra á árinu 2018 og er framhaldsverkefni áhersluverkefnis frá árinu 2017 en þá var gerð var úttekt á smávirkjanakostum í landshlutanum.  Alls bárust 17 umsóknir en tvær þeirra uppfylltu ekki skilyrði sem sett eru í reglum sjóðsins að því er segir á vef SSNV.

Smávirkjanasjóðurinn hefur þann tilgang að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra, undir 10 MW að stærð. Miðað er við yfirlit á mögulegum rennslisvirkjunum sem taldir eru upp í skýrslu Mannvits, Frumúttekt á smávirkjanakostum á Norðurlandi vestra, frá árinu 2018 en heimilt var þó að bæta við fleiri virkjunarkostum með samþykki SSNV. 

Auglýst var eftir umsóknum í Skref 1: Frummat smávirkjana. Ákveðið var að styrkja eftirtalin tíu verkefni:

Í Skagafirði: Korná/ Gljúfurá, Sellækur og Háleggsstaðaá. 

Í Austur-Húnavatnssýslu: Kornsá, Giljá, Stekkjarlækur, Grjótá og Brunná. 

Í Vestur-Húnavatnssýslu: Miðlunarlón á Þorgrímsstöðum og Illagilslækur.

Mótframlag umsækjenda er kr. 100.000. Smávirkjanasjóður SSNV mun greiða allan annan kostnað af frumúttektinni.  

Fyrirhugað er að veita styrki úr sjóðnum á næsta ári til næsta skrefs, mats á virkjanlegu rennsli, frummati hönnunar og byggingarkostnaðar. Gert er ráð fyrir að úthlutun þess hluta verkefnisins verði auglýst um mitt ár 2019.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir