Varað við flughálku á Norðurlandi vestra

Á Norðvesturlandi er varað við ísingu á vefsíðu Vegagerðarinnar. Flughált er því frá Hrútafjarðarbotni í Varmahlíð, eins á Þverárfjalli, Skagastrandavegi og frá Hofsós í Ketilás.
Eftir frosthörkur undanfarinna daga fór að rigna í dag og þegar aftur fór að kólna myndaðist mikil ísing.
Vegfarandi sem Feykir heyrði í sagði að á um það bil tíu mínútum hefðu tveir bílar skautað út af þjóðvegi 1 á um 50 km kafla í Vestur-Húnavatnssýslu og endaði annar þeirra á toppnum. Þá myndaðist umferðarteppa við Hvammstangavegamótin fyrir skemmstu.