Varað við grjóthruni á Siglufjarðarvegi
Norðaustan 13-23 m/s og snjókoma er á Ströndum og Norðurlandi vestra, hvassast á annesjum, en norðan 13-18 síðdegis. Frost 0 til 5 stig. Norðan 8-13 og él á morgun, frost 5 til 10 stig.
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á flestum leiðum á Norðurlandi, snjókoma og éljagangur. Varað er við grjóthruni á Siglufjarðarvegi og eru vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka aðgát.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og víða bjartviðri, en él úti við N- og A-ströndina. Vaxandi austanátt með éljum SV-til um kvöldið. Frost 2 til 14 stig, mest í innsveitum NA-til.
Á sunnudag:
Gengur í austan- og norðaustan 18-23 m/s með snjókomu eða éljagangi. Talsvert frost.
Á mánudag:
Allhvöss eða hvöss norðanátt og él, en bjartviðri á S- og V-landi. Áfram kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Austlæg átt og víða él, en bjart með köflum NA-til. Talsvert frost.
Á miðvikudag:
Líkur á austanhvassviðri með snjókomu eða éljum.