Varað við tjörublæðingum í malbiki
Vegagerðin varar við verulegum tjörublæðingum í malbiki á vegum í Borgarfirði, Húnavatnssýslum og í Skagafirði. Eru ökumenn því hvattir til að hægja vel á sér þegar þeir mæta öðrum bílum þar sem hætta getur skapast af steinkasti.
Að öðru leyti er að mestu greiðfært á svæðinu en þó er hálka og éljagangur á Öxnadalsheiði og hvassviðri á Siglufjarðarvegi að því er segir á vef Vegagerðarinnar, vegagerdin.is