,,Vatn er galdur"

Hugrún Lilja Hauksdóttir er Fljótamær sem er 24 ára gömul, en dettur í hálf fimmtugt seinna á árinu. Hún er búsett í 101 Reykjavík og er útskrifaður tækniteiknari og hefur nóg að gera. Hún lærir ljósmyndun í Ljósmyndaskólanum og ásamt því vinnur hún á vef- og markaðssviði hjá Nordic Visitor.

Hver eru þín helstu áhugamál?

Ljósmyndun og allt henni tengt er eiginlega hægt og bítandi að eigna sér líf mitt, en ásamt því fylgist ég vel með grafík og arkitektúr. Ég elska að ferðast og hef verið á smá flakki erlendis, og eftir að ég byrjaði að vinna í ferðabransanum langar mig líka að gera landið mitt að meira áhugamáli; ferðast meira um Ísland og taka myndir.

11034297_10153238903766004_4269020484286086340_n

Hver er þín daglega förðunarrútína?

Ég er mikið í að sikta út ódýrari snyrtivörur sem virka samt vel, ég er alls ekki “brand seeker”.
1. Ég hreinsa andlitið á kvöldin með E-vitamin Cleanser og Toner frá Body Shop og nota Loréal Youth Code næturkrem.

2. Yfirleitt skvetti ég köldu vatni í andlitið á mér á morgnana, set Loréal Triple Active Fresh rakakrem og spreyja Victoria’s Secret Primer and Setting Sprey létt yfir andlitið og leyfi því að þorna og græja á mér hárið á meðan.

3. Stundum ber ég jafnt lag af Sensai Bronzing geli yfir andlitið ef mér finnst ég vanta smá “glow”.

4. Svo renni ég yfir andlitið með Double Perfection möttu púðri frá Chanel og bleyti aðeins upp í burstanum ef ég vil þekja vel.

5. Ég bretti alltaf á mér augnhárin, en þau eru leiðinlega stutt og mér oft til ama.

6. Ég hef verið team Lancomé Drama í mörg ár og alltaf endað þar aftur, er reyndar með Lancomé Grandiose núna og fíla hann mjög vel.

7. Ég fylli yfirleitt upp í augabrúnirnar með H&M Eyebrow Kit og set eyeliner í innri augnlínuna með kolablýantinum frá Le Crayon Khol frá Lancomé.

8. Ég set alltaf smá kinnalit á eplin og hef notað Terracotta Blush-On frá Golden Rose í meira en 2 ár og er langt frá því að vera búin, hann er fullkominn fyrir minn húðlit og ég nota hann bæði hversdags og fínt.

9. Set svo smá sólarpúður ef mér finnst vanta og nota þá H&M Bronzing Powder sem er ódýrt og létt sem mér finnst fínt.

10. Ef mig myndi langa að punta mig aðeins upp fyrir daginn þá myndi ég skella á mig eyeliner línu með spíss, en ég kann mjög vel við Master Precise eyelinerinn frá Maybelline.

11. Svo myndi ég toppa lookið með nýja Smashbox Electric Pink varalitnum mínum sem er mattur og virkilega kúl. 

Ef ég vissi að ég ætti langan dag fyrir höndum myndi ég spreyja létt yfir aftur með spreyinu frá Victoria’s Secret, en það innsiglar förðunina vel fyrir langan dag í tökum eða á skrifstofunni.

Daglega förðunarrútína

 

 

 

 

 

 

 

 

Hver er þín uppáhalds förðunarvara?

Chanel púðrið mitt er nýja uppáhalds. Og svo er það kannski ekki förðunarvara en ég er nýlega búin að fjárfesta í Silica Mud maskanum frá Blue Lagoon. Hann er algjört undur og ég fann strax mun á húðinni. Mæli með honum allan daginn.

Uppáhalds

Hvenær byrjaðir þú að farða þig?

Ætli ég eigi ekki ca. einstugs förðunarafmæli á árinu ef þau teljast gild.

Hvað er þitt versta ”förðunarslys”?

Þau eru nú orðin vandræðalega mörg, en ég nefni ein frá upphafi þegar ég gekk eitursvöl um grunnskólagangana með vel smurð augnlokin af laxableikum augnskugga á salíslökum virkum degi. Hann fór mér því miður enganveginn og endaði í ruslinu en slæm minningin lifir. 

11043188_10153238903746004_6035271685115256433_n

Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?

Það er kannski gömul mýta, en vatn er galdur! Að drekka nóg vatn er hrikalega mikilvægt. Vinkonur mínar eru farnar að hashtagga #hafmeyjan þegar verið er að tala um mig, en ég fer í bað einu sinni á dag, reyni að vera dugleg að skrúbba húðina og ber krem og olíu á kroppinn til skiptis. Ég er alveg háð Masterline Firming Body Cream og svo er Moroccan Dry Oil á líkamann eftir heitt bað algjör dásemd. Ég elska lyktina af henni, en ég nota Maroocan hárvörurnar mjög mikið. Olían inniheldur argan, ólífu og avocado olíu, er paraban free og þornar fljótt.
Þegar ég er dugleg að fara í sund og gufu þá finn ég virkilegan mun á líkamanum, ljómanum og andlega líðan svo vatn í öllu formi hjálpar alltaf til.

háð

Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?

Nei, ég get ekki sagt að það sé einhver einn. Ég kíki mjög oft á reykjavikfashionjournal á trendnet.is og svo kíki ég oft í slúðurblöðin og á instagram.

11042118_10153238978461004_1889450595_n

Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?

Ó gosh! Ég ætla að segja Jennifer Lawrence, hún er alltaf svo hriklega svöl og ekkert ”fake” á Hollywood standarnum.

jennifer lawrence

Eitthvað að lokum?

Bara að muna að brosa, það er fríkeypis og setur alltaf punktinn yfir i-ið á fallegri ljósmynd.

Hér er svo linkur af heimsíðu Hugrúnar, endilega kíkið á hana.
http://www.liljalilja.com/

lilja lilja

Fleiri fréttir