Vatnstjón vegna ofna á 3ja daga fresti

Vatnstjón vegna leka út frá ofnum eru algeng á íslenskum heimilum en 3ja hvern dag er slíkt tjón tilkynnt til VÍS en á heimasíðu þess kemur fram að oft megi sjá fyrirboða slíks tjóns á ofnum, til dæmis ryðbletti eða útfellingar á samskeytum. Það er því mikilvægt að skoða ofnana og skipta þeim út, ef þessi einkenni eru sýnileg.

Á haustin eykst álag á ofnakerfið þegar kólnar á ný. Þá er algengt að ofnarnir hitni ekki almennilega eftir að hafa haft lítið rennsli yfir sumarið. Til að koma rennsli af stað er einkum þrennt sem getur þurft að gera:

-           Liðka pinnann til sem er bakvið hitanemann (termóstatið)
-           Skipta um pakkdósina sem pinninn er í
-           Tæma loft af ofninum með þar til gerðum lykli

Mikilvægt er að bera sig rétt að þegar farið er yfir þessa hluti. Ef fólk kann ekki til verka þá mælum við með að fagmaður sé fenginn í verkið því ef eitthvað fer úrskeiðis getur heitt vatn lekið með tilheyrandi hættu á að menn brenni sig eða vatnstjón verði. 

VÍS hvetur alla til að gefa sér tíma til að skoða ástand ofnanna á heimilinu, en samkvæmt tölfræði verða flest vatnstjón út frá ofnum í október til desember, og Feykir tekur undir það.

Fleiri fréttir