Veðrið að ganga niður en vegir víða ófærir

Hann er talsvert minni snjórinn niðri í bæ á Króknum en blaðamanni Feykis datt þó ekki í hug að stinga höfði út í vetrarveðrið í dag eða vaða snjóinn upp í læri í þeim tilgangi að moka frá bílnum sem er hálfur í kafi. Það er talsvert verk fyrir höndum að koma honum á götuna. Nema það hláni fljótlega?

Veður hefur verið hundleiðinlegt á Norðurlandi vestra í dag, það hefur snjóað duglega í snarpri norðanáttinni og ekkert ferðaveður verið síðasta sólarhringinn. Fjallvegir eru nú flestir ófærir en óveðrið er þó að mestu gengið niður og á morgun, sunnudag, er gert ráð fyrir ágætu veðri.

Það segir sig sjálft að færð á vegum er víðast hvar slæm hér á Stór-Tröllaskagasvæðinu en talsvert skaplegri í Húnavatnssýslum. Helstu fjallvegir eru ófærir og á það við um Öxnadalsheiði, Þverárfjall, Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði. Sömuleiðis er ófært í Fljótum og Siglufjarðarvegur og vegurinn um Ólafsfjarðarmúla eru lokaðir umferð vegna snjóflóðahættu. Vatnsskarð er þungfært og erfið færð, þæfingur eða snjóþekja á nær öllum vegum í Skagafirði.

Öxnadalsheiðin lokaðist um kl. 16 á föstudag en þá var veðrið orðið vont og bílar sátu fastir á heiðinni. Björgunarsveitir úr Eyjafirði og Skagafirði komu ferðalöngunum til aðstoðar.

Innanbæjar á Sauðárkróki er illfært í þrengri götum og botnlöngum og snjórinn þungur og erfiður viðureignar. Á morgun og framan af mánudegi ætti að gefast færi á að riðja götur en seinni partinn á mánudag er aftur gert ráð fyrir ofsaveðri, en því fylgir hækkandi hitastig og kolgeggjuð austanátt. Reiknað er með að það veður gangi niður um hádegi á þriðjudag og þá kólnar aftur.

Fleiri fréttir