Veitir eina milljón króna til kaupa á nýju speglunartæki

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur samþykkt að veita eina milljón króna til fjársöfnunar Kiwanisklúbbsins Drangey vegna kaupa á nýju speglunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

Kiwanisklúbbnum Drangey er í fjársöfnun á meðal fyrirtækja og stofnana í Skagafirði til að kaupa framangreint tæki, sem meðal annars myndi nýtast í átaksverkefni varðandi skimun fyrir ristilkrabbameini. Áætlað er að tækið kosti um 18 milljónir króna uppsett.

Beiðni Kiwanisklúbbsins var tekin fyrir á fundi byggðarráðs fyrir helgi  og þá komu Jónas Svavarsson og Gunnar Pétursson, fulltrúar Kiwanisklúbbsins Drangeyjar, og kynntu verkefnið fyrir ráðsmönnum.

Byggðarráð samþykkti að veita eina milljón króna til verkefnisins og skiptir framlaginu á þann veg að árið 2014 greiðast 500.000 kr. annars vegar og hins vegar 500.000 kr. á árinu 2015.

Fleiri fréttir