Vetrarhátíð sett á fimmtudagskvöld
Vetrarhátíð í Skagafirði verður haldin dagana 19.-21. febrúar. Hátíðin samanstendur af fjölbreyttri og fjölskylduvænni dagskrá, bæði skíðasvæðinu í Tindastóli og víðar um Skagafjörðinn, og verður hún formlega sett nk. fimmtudagskvöld og rekur svo hver viðburðurinn annan.
„Skíðasvæðið í Tindastóli er afar fjölskylduvænt skíðasvæði í fjallaparadísinni Tindastóli í Skagafirði. Fjallið býður upp á mikla möguleika, bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Allir geta því fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um er að ræða svigskíði, snjóbretti eða gönguskíði. Hægt er að leigja allan skíða- og brettabúnað í fjallinu,“ segir um hátíðina á vef Svf. Skagafjarðar.