Vetrarhátíðin í Tindastóli sett í kvöld
Vetrarhátíðin í Tindastóli verður formlega sett í Sauðárkrókskirkju í kvöld af séra Sigríði Gunnarsdóttur sóknarpresti. Þá verður boðið upp á tónlistaratriði í kirkjunni af þessu tilefni. Eftir setninguna er hægt að bregða sér á spilakvöld í Húsi frítímans.
Skíðafjörið hefst síðan á föstudaginn og opnar svæðið kl. 11. Skíðasvæðið í Tindastóli er fjölskylduvænt og býður upp á mikla möguleika fyrir byrjendur sem lengra komna í skíðaíþróttinni. Allt er í boði, svigskíði, bretti og ganga og hægt er að leigja allan skíða- og brettabúnað á staðnum.