Vetrarstarf eldri borgara hefst í næstu viku
Á heimasíðu Húss frímtímans er sagt frá því að nú styttist í að vetrarstarf eldri borgara í Skagafirði geti hafist í húsinu, en þar hafa framkvæmdir staðið yfir. Hefst félagsstarfið á mánudaginn í næstu viku, þann 5. október með félagsvist og bridge. Á miðvikudeginum, 7. október, byrjar leikfiminámskeið sem Guðrún Helga Tryggvadóttir einkaþjálfari kennir milli kl 10 og 11.
Eldri borgarar hittast í hverri viku í Húsi frítímans á mánudögum og fimmtudögum til að spila og fá sér kaffi saman milli kl 13 og 16. Starfsmenn Húss frítímans benda á að ef spilaáhugi er ekki fyrir hendi sé öllum velkomið að mæta og nýta sér allt það sem húsið hefur upp á að bjóða, s.s. tölvur, notaleg herbergi til lesturs eða handavinnu og fá sér í leiðinni kaffi í góðum félagsskap.