Víða snjókoma og hálka

Vefur Vegagerðarinnar klukkan 11:20 í dag, laugardaginn 29. október.
Vefur Vegagerðarinnar klukkan 11:20 í dag, laugardaginn 29. október.

Víða á Norðurlandi vestra er snjókoma og hálka, samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar klukkan 11:20 í morgun. Á Þverárfjalli er A8 m/s og hiti við frostmark og snjókoma. Á Vatnsskarði er ANA 8 m/s og hiti við frostmark. Víða í Skagafirði er éljagangur og hálka. Vegir í Húnavatnssýslum eru allir merktir greiðfærir.

Á Gauksmýri er ANA 6m/s og 4 stiga hiti en á Blönduósi N3 m/s og eins stigs hiti. Veðurstofan spáir suðaustan og austan 8-15 m/s, rigning og hita 4 til 9 stig í dag, á Ströndum og Norðurlandi vestra. Úrkomulítið seint í kvöld.

Fleiri fréttir